Jæja... langt síðan síðast en það hefur ekki mikið markvert
verið að gerast á heimilinu síðustu vikurnar 
Við erum bara heima og höfum það nice. Við bræðurnir erum alveg
svakalega duglegir, stækkum ört og döfnum. Við vorum mældir á
fimmtudaginn síðasta og vorum þá hvor um sig búnir að þyngjast um
600 gr. Hjúkkan hélt að þetta væri eitthvað grín næstum því og
sagði að ef að hún hefði ekki verið þarna og vigtað okkur sjálf þá
hefði hún ekki trúað þessu 
Þannig að núna er ég Eggert orðinn 2.800 gr og Eiður brói orðinn
4.100 gr
Við eigum það til að taka okkar móment og vilja bara láta
knúsast með okkur en þannig er það bara með öll börn. Maríanna
systir er rosa góð við okkur og er öll að koma til að tala, er
orðin rosalega dugleg og svo er hún að syngja á fullu
. Hún
er alltaf að strjúka okkur og kyssa og er rosalega góð við
okkur.
Núna eru Aron stóri bróðir og Maríanna orðnir betri vinir og
farin að leika sér saman þó auðvitað þau eigi það til að rífast því
að stundum langar mann bara til að leika með sömu hlutina

Við erum svo að fara upp á spítala á morgun í skoðun og við
höldum að læknarnir verði bara rosalega ánægðir með okkur því að
við erum bara rosalega duglegir!
Við erum búnir að fara út að labba 2x með mömmu og pabba og
okkur finnst það rosalega nice að liggja í stóra vagninum okkar og
láta labba um með okkur. Mamma og pabbi taka því fegins hendi að
mega fara út með okkur og labba og fá frískt loft, við getum bara
ekki gert mikið af því núna því að vetur konungur ákvað að kæla
hitastigið aðeins á okkur þannig að við erum bara inni þangað til
að það hlýnar aðeins meira 
Okkur líður best saman bræðrunum, þannig að þegar að við erum að
fara sofa þá viljum við vera saman í rúminu og svo færum við okkur
alveg saman og klessum okkur saman og sofum þannig. 
Það þarf ekki að spyrja að því að mömmu og pabba finnst við
sætustu tvíburarnir og við systkinin sætustu börnin.
Við skrifum svo meira þegar að við erum búnir að fara til
læknisins og þegar að meira er búið að gerast hjá okkur 
Og já .. mamma var að bæta við fleiri myndum af okkur þannig að
endilega kíkiði